Þá er ég loksins komin með fósturfjölskyldu, eftir langa bið !
Ég bý í litlum bæ (14.900 íbúar), sem heitir San Ferdinando di Puglia sem er sunnarlega á Ítalíu, á austurströndinni. Ég mun búa hjá hjónum sem heita Aurelio (sem er dósent í einhverju) og Antonietta (listakona) sem eru fædd 1950 og 1956. Það eru engin börn inná heimilinu en nokkrir kettir :)
Skólinn sem fer sennilega í er svokallaður klíniskur menntaskóli, sem sérhæfir sig í heilbrigðisgeiranum, sem mér finnst frábært því ég ætlaði að verða læknir. Skólinn er u.þ.b. 10 km í burtu frá heimilinu mínu, sem er nú ekki mikið miðað við ýmislegt.
Á öllu sem ég las um þau þá líst mér mjög vel á þetta fólk og ég vona að við eigum eftir að geta búið saman, það er víst ekkert sjálfsagt. Þau hafa gaman af því að fara á söfn, að lesa, í leikhús, sjálfboðavinna, horfa á sjónvarpið, fara í bíó, versla og elda.
Ég fór inná google earth og fann húsið sem ég mun eiga heima í næsta árið. Ég hef nú ekki mikið meira að segja í bili, ég pósta aftur þegar fer að nálgast brottför og ég er komin með meiri upplýsingar um skólann.
Bílpróf og afmæli eftir viku !
- ABG

