Jaeja, thad er ekkert sma langt sidan eg skrifadi sidustu faerslu, eg hef bara varla haft tima til ad fara eitthvad almennilega inna netid. Allt er komid i rutinu herna, thad er skolinn og vinirnir sem eg eydi mestum tima minum i. Eg fer mjog mikid ut med vinum minum, og mer finnst thad frabaert, thvi eins og eg hef oft sagt tha finnst mer thetta folk frabaert.
En ja um helgina forum vid Mia, asamt ollum hinum skiptinemunum sem eru i Pulgia, a hotel rett fyrir utan Taranto a 6 week camp. Thetta var vist 4* hotel, ekki 5* eins og eg sagdi a facebook, en thad var samt rosalega flott og mjog snyrtilegt, miklu flottara en thad sem vid vorum a i arrival camp...
Vid eyddum helgini ad tala um allskonar hluti sem ad vid vaerum ad ganga i gegnum, baedi vandamal og thad sem er fyndid eda skemmtilegt. A sunnudagsmorguninn forum vid oll nidur a strondina, sem var tharna rett hja. Vid vorum ad synda i sjonum og thad var ekkert sma gaman, ad visu daltid saltur, vid forum i kaf og thegar vid komum aftur tha var bara salt ut um allt :) Thad sem er fannst samt flottast var ad af thvi vid voum svo langt ut i sjonum ad eg sa eiginlega bara sjo allstadar, fyrir utan strondina, mer fannst thad svo fallegt. Thegar vid komum aftur a hotelid forum eg og stelpa fra Kroatiu, sem var med mer i herbergi, i sunlaugina til ad skola af okkur saltid. Eg sver ad sundlaugin var miklu kaldari en sjorinn ! Sem betur fer var gufubad tharna lika...
Eftir ad eg var buin ad fara i sturtu tha thurfti eg ad fara i svona personal interview(sem allir gera), med sjalfbodalidanum sem var ad stjorna hopnum minum. Thar var bara verid ad tala um fjolskylduna adallega og hvernig mer vaeri ad ganga. Um kvoldid var eg bara adeins ad tala vid mommu a skype, og eg for bara frekar snemma ad sofa, thvi eg var svo klikkad threytt.
Manudagurinn leid mjog svipad eins og sunnudagurinn, vid toludum forum i leiki og thad var fint. Um kvoldid var sidan svo kallad talent show, thar sem ad mardur gat gert bara hvad sem er. Stelpur fra Noregi ropudu norska stafroid, stelpa fra Thyskalandi song tvo log og spiladi gitar, sem var ekkert sma flott. Eg las upp islenskt ljod, og var buin ad thyda thad yfir a ensku, thad kom mer virkilega a ovart hvad morgum fannst thad flott... Sidan voru allskonar dansar baedi tjodar eitthvad og audvitad gangnam style... Thetta var lika thannig ad thad var s.s. hopur sem byrjadi a svidinu og sidan foru bara allir og donsudu med, jafnvel tveir strakar hlupu ovaent inna svidid og gerdu tharna lyftu atridid... Vid vorum oll ad farast ur hlatri !
Eg er ad reyna ad koma myndbondunum inna facebook, thau eru ekki sma fyndin ...
En ja seinna um kvoldidvar thvilikt fjor, og foru bara allir ad dansa, og ekki svona dansa eins og er gert a Islandi, heldur virkilega ad dansa ! Allavega thetta var gaman, og fullt af nyjum vinum sem eg thurfti ad kvedja daginn eftir.
En ferdin heim gekk vel, bara 2 timar med lest, sem er ekki neitt ef ad thu ert med manneskju ur allt odrum heimshluta a moti ther. Var ad spjalla vid strak fra Russlandi mestallann timann :)
Eg vona ad thid hafid haft gaman af thvi ad lesa thetta !
- Audur Bjork
Thursday, October 25, 2012
Sunday, September 23, 2012
Ferðin til Bari 12.09.'12
Miðvikudaginn 12.sept fórum við Mia, María og
Aurelio í skólann sem við erum að fara í, sem er staðsettur í Trinitapoli, til
að hitta skólastjórann og eitthvað. Ég held að þetta sé alveg ágætur skóli,
veggirnir eru að vísu aðeins of myntugrænir fyrir minn smekk... En það voru
allir mjög fínir og spenntir yfir að fá okkur í skólann. Þannig við töluðum við
skólastjórann eða presidente eins og hann er kallaður á ítölsku.
Á leiðinni heim fórum við niður að sjónum, í fjöruborðið, og það var svo fallegt ! Fólk var þar bara að baða sig, enda ekki skrítið, ekki nema 30°C ... Sjórinn var svo tær að ég var ekki að trúa því, ég og Mia stukkum auðvitað útí. Ekki kannski alveg en við óðum alveg upp að hnjám J Við ætlum að fara þarna aftur, fleiri, einhverntíman seinna og taka með okkur sundföt !

Upp úr hádegi fórum við öll (þá meina ég fjölskyldan
mín og fjölskyldan hennar Miu) til Bari, sem að er frekar stór borg 80 km
austur af San Ferdinando. Þar fórum við í skrítnustu verslunarmiðstöðvum sem að
ég hef farið í ! Þetta var eiginlega ekki verslunarmiðstöð, heldur samansafn af
húsgagnaverslunum og svona allskonar mat sem unnið er í Puglia, inní risastóru
rými, mér var hugsað til Bogans þegar ég sá það. Puglia er s.s. héraðið sem að ég er í. Þarna
fyrir framan voru fullt af svona styttum til sölu, alveg risastórum ! Þarna fengum við að smakka brauð með ólívuolíu
og eitthvað sem að ég man ekki alveg hvað er, og þarna voru líka allskonar
ostar og vín í boði. Þarna voru líka staflar af kössum með tómötum, ég er ekki
að grínast, þeir náðu svona 5 metra uppí loftið !
Foreldrarnir voru alveg rosalega til í að skoða ALLAR eldhúsinnréttingarnar, baðherbergin og sófana þannig við Mia, María og Simone skemmtum okkur við að setjast á öll klósettin, prófa sófana og eitthvað ... Við fengum okkur samt ís ! Ótrúlega góðann gelato J
Loksins fórum við út úr þessu blessaða húsgagnarugli og inní The Palace of Nations, sem er risastórt húsnæði með básum frá ýmsum löndum, en við fundum hvorki Ísland né Finnland. Það var samt sem áður mjög mikið af áhugaverðum hlutum þarna, við stelpurnar misstum okkur pínu yfir eyrnalokkum frá Víetnam og ég keypti mér rosalega fallega útskorið, kínverskt box fyrir trélitina mína, sem ég nota þegar ég er að teikna. Það var líka alveg hellingur af drasli þarna... Við vorum orðin rosalega þreytt þarna uppúr 8 eða 9 um kvöldið, sérstaklega Simone sem hafði vaknað kl.04 til að fara að vinna ...
Þegar að ‚foreldrar‘ okkar voru búin að velta einhverju indversku rúmteppi fram og aftur í u.þ.b. 15 mínútur, þá fórum við loks út úr The Palace of Nations. Við vorum á leiðinni að einhverjum gosbrunni þegar þau eldri sáu forngripabúð sem að þau þurftu að kíkja aðeins á. Við hin fórum bara að þessum gullfallega gosbrunni og fengum okkur sæti á brúninni. Þetta var svona ekta ítalskur gosbrunnur, risastór og með fullt af styttum. Við tókum nokkrar myndir og fórum heim eftir það. Eða það hélt ég, en í staðin fyrir að fara heim þá fórum við öll á veitingastað í Trani. Það var mjög gaman og maturinn var góður. Mér brá samt þvílíkt þegar þjóninn kom með forrétt sem sem var annaðhvort kolkrabbahalar eða smokkfiska dæmi eitthvað... Ég var frekar fegin að þurfa ekki að smakka hann.

Fullt af myndum hér fyrir neðan !
- ABG
Myndir frá Bari 12.09.'12
Myndir frá Bari !
| Verið að skoða orðabókina |
| María, ég, Simone og Mia fyrir framan verslunarmiðstöðina |
| Fyrir utan búðirnar voru fullt af styttum til sölu |
| Frá vinstri: Mia, Nicola, María, Simone, Laura og Antonietta |
| Aðeins að prófa |
| Mia alveg að missa sig yfir fallega baðinu :) |
| mér fannst þetta svo fáránlegt ég varð að taka mynd |
| Mozzarella dýr ... |
| Okkur var klikkaðslega heitt þegar hér er komið, og birtist ekki bara þessi æðislega sundlaug ! Sem við máttum því miður ekki stinga okkur útí. Eins og Maríu langaði að gera... |
| Mia búin að sulla á fína hvíta sófann |
| nei jók |
| 5 metra hár stafki af tómötum ! |
| Þessir gaurar voru bara að rölta þarna um og spila |
| Frekar þreyttur |
| Við hjá gosbrunninum |
| æðisleg sundlaug sem að ég er að hugsa um að fjárfesta í einhverntímann |
Friday, September 21, 2012
Fyrstu dagarnir
Mánudagurinn 10. Sept leið mjög fljótlega. Ég eyddi deginum
eiginlega í að koma mér fyrir í herberginu mínu. Mia og María komu með pabba
sínum og þær buðu mér að koma með þeim og Simone, kærasta Maríu, út að borða um
kvöldið, ásamt vinkonu Maríu og kærastanum hennar. Ég þáði auðvitað og um kvöldið fór ég heim til
þeirra. Mia og María voru að gera sig tilbúnar og á meðan spjölluðum við hin,
eða reyndum það, allir tala rosalega lélega ensku hérna ... Mér finnst það í
raun ekkert skrítið, því eina tungumálið sem að heyrist hérna er ítalska ! Allt
í útvarpi og sjónvarpi er annað hvort talsett eða bara ítalskt. En já, við
fórum á veitingastað sem er rétt hjá heimili Maríu og Miu, þær búa rétt hjá
torginu, sem er svona miðbærinn eiginlega. Á torginu hittum við vinkonu Maríu
sem heitir Palma, og kærastann hennar. Allavega þetta var mjög skemmtilegt
kvöld, og þar sem að María og Palma gátu alveg bjargað sér á ensku þá túlkuðu
þær samræðurnar fyrir okkur Miu.
Á þriðjudaginn gerðum við ekkert sérstakt nema að um kvöldið
þá fór ég til Maríu og Miu. Mia var reyndar úti að hjóla með stóra bróður
þeirra, Angelo, þannig ég og María vorum eitthvað að spjalla og fengum okkur að
borða. Það er ótrúlegt hvað Ítalir borða mikið, alltaf þegar ég er búin að borða
þá er ég spurð hvort að ég vilji ekki örugglega meira ? Ætli maður verði ekki
bara að vera ákveðin, það má samt ekki vera svo að maður sé dónalegur. En
allavega þegar þau Angelo og Mia voru komin heim þá fór Mia að tala við
kærastann sinn á facebook, og Angelo kenndi mér spil á meðan sem heitir scoopa,
held ég. Það er alveg frekar auðvelt, en útskýringarnar þvældust aðeins fyrir
mér þar sem að þær voru að mestu leyti á ítölsku eða mjög bjagaðari ensku. En
þetta var órtúlega gaman. Simone kom stuttu eftir að við byrjuðum að spila og
við fórum aðeins að rökræða ágæti ítalska boltans. Ég sagði þeim að sá eini
fótboltamaður sem að ég þekkti eitthvað væri Messi, og hann er ekki einu sinni
ítalskur. Þeir hlógu bara...
Fyndnar staðreyndir um Ítalíu/Ítala:
*Strákarnir hérna ganga með hliðartöskur og plokka á sér augabrúnirnar...
*Ítalir eru alveg jafn klikkaður ökumenn og allir halda, og þeir kunna ekki að leggja í stæði
*Ég er bara frekar hávaxin stelpa hérna ! Já ég veit, ítalskar stelpur/ konur eru mjög litlar
*Ítalir drekka mikið af svokallaða acqua minerale, sem bragðast eins og gamalt sódavatn... jukk
Þangað til næst :)
Saturday, September 15, 2012
Nokkrar myndir
Hææ !
Ég hef átt í erfiðleikum með að hlaða myndum inná fb hjá mér, og ég veit að sum ykkar voru farin að bíða eftir þeim. Þannig ég ætla að hlaða nokkrum hingað inn :)
Hérna erum við að bíða eftir fluginu okkar til Rómar, á flugellinum í Berlín. Langar að benda á það að Daníel liggur á gólfinu ...

Við Salka nýkomnar á hótelið í Róm. Mér leið aðeins betur þegar ég var búin í sturtu. Held að höfuðið á mér hafi varla verið búið að snerta koddan áður en ég sofnaði
Hérna erum við að bíða eftir rútu, til að komast til fjölskyldunnar. Frá vinstri: Anni(Finnland), Mia(Finnland), ég, Tamara(Króatía) og síðan
stelpur frá Brasilíu sem að ég náði ekki alveg hvað heita ...
Ég hef átt í erfiðleikum með að hlaða myndum inná fb hjá mér, og ég veit að sum ykkar voru farin að bíða eftir þeim. Þannig ég ætla að hlaða nokkrum hingað inn :)
Hérna erum við að bíða eftir fluginu okkar til Rómar, á flugellinum í Berlín. Langar að benda á það að Daníel liggur á gólfinu ...
| 2 af 3 rúmum, mitt var til hægri |
Hérna erum við að bíða eftir rútu, til að komast til fjölskyldunnar. Frá vinstri: Anni(Finnland), Mia(Finnland), ég, Tamara(Króatía) og síðan
stelpur frá Brasilíu sem að ég náði ekki alveg hvað heita ...
| Þegar við fórum til Bari á miðvikudaginn, veit að þetta er léleg mynd, en allavega frá vinstri þá er María Sofía, ég, Simone og Mia :) Ég hef eytt mestum tíma mínum með þeim síðan ég kom. |
Thursday, September 13, 2012
Loksins :)
Þá hef ég eitthvað að
segja ! Það er búið að vera klikkað að gera síðustu daga og ætli ég byrji ekki
bara á byrjuninni.
Aðfaranótt 7.sept vöknuðum við kl.04 og fórum að gera okkur til, því við þurftum að vera mætt kl.06. Þannig þarna vorum við 12 unglingar sem vorum að fara til Ítalíu og foreldrar þeirra. Við þurftum að vísu að bíða svo lengi í röð, til að tékka okkur inn, að við gátum varla hlaupið einn hring í fríhöfninni og fengið okkur að borða, áður en kallað var út í vél. Flugið frá Kef til Berlínar var fínt, allir skiptinemarnir fengu að sitja saman, ja nema tveir, þannig að við gátum spjallað og reynt að sofa á milli.
Þegar við lentum í Berlín, þá byrjaði kafli sem enginn okkar hafði hlakkað rosalega til. 7 klst bið á skítugu GÓLFINU ! Við reyndum samt að vera sniðug og spila Alias og reyna að hafa eitthvað að gera, hlusta á tónlist, reyna að fara á netið, teikna eða spila á fiðlu.

Annars komust við að lokum inní fríhöfnina og gátum fengið okkur smá að borða. Flugið
frá Berlín til Rómar var fínt, við flugum svo lágt yfir að við gátum séð ljósin
fyrir neðan okkur ! AFS sjálfboðaliðarnir tóku á móti okkur og við fórum með
rútu frá flugvellinum að hótelinu sem að við gistum ásamt öllum hinum
skiptinemunum. Þegar við komum þangað kl rúmlega 01.30 voru flest okkar ekkert
til í að heyra þær fréttir að daginn eftir þyrftum við að vakna kl.07.30 til að
byrja dagskrána...
En við fórum á fætur og byrjuðum daginn. Ég eyddi deginum á kynningum sem að var fínt, það var samt skemmtilegast að kynnast öllum krökkunum og já fara í blak þarna í hádeginu. Ég var svo hrikalega spennt að fylgjast með að ég sofnaði í brunastiganum ...

Um kvöldið fórum við öll (500) uppí eitt risastórt tjald þar sem að forseti AFS
á Ítalíu, held ég alveg örugglega, var að bjóða okkur formlega inní landið.
Eftir það fórum við bara inní herbergi og vorum þar restina af kvöldinu, að
nýta síðustu tímana sem við íslensku nemarnir höfðum saman.
Daginn eftir var byrjað á að lemja
ótrúlega fast á hurðina hjá mér, Sölku og Soffíu kl.06 ! Þessi gaur var heppinn
að fá bara ekki lampann í höfuðið... En greyið hafði ætlað að vera svo góður að
vekja Auði Kartrínu sem var í næsta herbergi, svo hún myndi ekki missa af
rútunni. Hann ruglaðist bara á Auðum. Kl.13 fór ég af stað í rútu með Miu
(Finnland, hún var líka að fara til San Ferdinando) með 2 tíma stoppi á
rútustöð að vísu ...
Það var 5 tíma rútuferð framundan
svo að við létum bara fara vel um okkur. Allt gekk eins og í sögu og þegar við
komum til Ceringola kl.20.30 biðu tvær fjölskyldur eftir okkur og við vorum
báðar knúsaðar og kysstar í drasl ! En það er nefnilega þannig að fósturpabbi
Miu (Nicholia) og fósturpabbi minn (Aurelio) eru bræður, þannig við
frændsystkinin (ég, Mia, Maria Sofia, Simone(kærasti Mariu Sofiu) og Angelo)
erum búin að vera mjög mikið saman og eigum eftir að vera það út árið. Við Mia
og María erum í sama skóla, á sama ári en ekki í sama bekk J
Hérna fyrir neðan er smá
fjölskylutré
Skrifa meira seinna !
Komin til Italiu !
Thad sem èg var nù bùin ad skrifa flott og ytarlegt bolgg thà er èg ì vandraedum med ad koma thvi innì tolvuna sem ad èg hef adgand ad (min er ekki med netsambandi). Thad gekk altt rosalega vel og èg er hja finu fòlki. Thannig ad thvi midur verdid thid ad bìda adeins lengur ... Annars skrifa èg thad bara uppà nytt !
- Audur Bjork
- Audur Bjork
Wednesday, September 5, 2012
Allt að gerast, bara tveir dagar í brottför !
2 dagar í brottför !
Eftir nokkrar vikur af þaulskipulögðum dögum, mjög mikið af tímatakmörkum og æðislegu kveðjupartýi þá er ég komin til Reykjavíkur og er hjá Ingvari og Ellen. Kom í gær með flugi til þess að eiga meiri tíma með systkinum mínum og ættfólki sem að ég sé minna. Ellen og Ingvar voru náttúrulega búin að græja rosalega fínan mat um kvöldið, þau eru alveg æðislegir gestgjafar ! Ein af bestu vinkonum mínum, Björk, kom frá Vestmannaeyjum í gær til að hitta mig aðeins og gisti með mér hjá Ingvari.
Það er ótrúlegt hvað ég á alveg rosalega gott vinafólk og yndislega fjölskyldu, það sést alveg rosalega vel þegar maður ákveður að flýja landið ...
Annars hef ég rosalega lítið að segja, á morgun förum ég og mamma á einhverskonar ferðafund hjá AFS, og við 12 skiptinemarnir sem erum að fara til Ítalíu, fljúgum út á föstudagsmorguninn 7.sept kl.08.30 ! Við millilendum í Berlín (í nokkrar klst...) áður en að við höldum áfram til Rómar, en þar er áætluð lending kl.23.45. Við verðum örugglega þokkalega þreytt þegar við komum á hótelið til allra hinna AFS nemana. Þá daginn eftir held ég, byrjar 2 daga komunámskeið fyrir okkur 470 skiptinemana. Við hlökkum öll rosalega til að hitta hvort annað, því við erum búin að vera í facebook sambandi síðan einhverntima í mars held ég !
En ég læt vita af mér og ég vona að næsta færsla verði aðeins meira spennandi :)
- Auður Björk

Monday, August 6, 2012
Fósturfjölskyldan komin !
Þá er ég loksins komin með fósturfjölskyldu, eftir langa bið !
Ég bý í litlum bæ (14.900 íbúar), sem heitir San Ferdinando di Puglia sem er sunnarlega á Ítalíu, á austurströndinni. Ég mun búa hjá hjónum sem heita Aurelio (sem er dósent í einhverju) og Antonietta (listakona) sem eru fædd 1950 og 1956. Það eru engin börn inná heimilinu en nokkrir kettir :)
Skólinn sem fer sennilega í er svokallaður klíniskur menntaskóli, sem sérhæfir sig í heilbrigðisgeiranum, sem mér finnst frábært því ég ætlaði að verða læknir. Skólinn er u.þ.b. 10 km í burtu frá heimilinu mínu, sem er nú ekki mikið miðað við ýmislegt.
Á öllu sem ég las um þau þá líst mér mjög vel á þetta fólk og ég vona að við eigum eftir að geta búið saman, það er víst ekkert sjálfsagt. Þau hafa gaman af því að fara á söfn, að lesa, í leikhús, sjálfboðavinna, horfa á sjónvarpið, fara í bíó, versla og elda.
Ég fór inná google earth og fann húsið sem ég mun eiga heima í næsta árið. Ég hef nú ekki mikið meira að segja í bili, ég pósta aftur þegar fer að nálgast brottför og ég er komin með meiri upplýsingar um skólann.
Bílpróf og afmæli eftir viku !
- ABG
Saturday, July 21, 2012
Ný síða
Jæja, þá er þessi síða komin, eða ég held það allavega. Ég ákvað s.s. að búa til blog síðu um verðandi ár mitt á Ítalíu svo að fjölskyldan mín og vinir geti fylgst með hvað er að gerast hjá mér.
- ABG
- ABG
Subscribe to:
Comments (Atom)