Thursday, September 13, 2012

Loksins :)


Þá hef ég eitthvað að segja ! Það er búið að vera klikkað að gera síðustu daga og ætli ég byrji ekki bara á byrjuninni.
Aðfaranótt 7.sept vöknuðum við kl.04 og fórum að gera okkur til, því við þurftum að vera mætt kl.06. Þannig þarna vorum við 12 unglingar sem vorum að fara til Ítalíu og foreldrar þeirra. Við þurftum að vísu að bíða svo lengi í röð, til að tékka okkur inn, að við gátum varla hlaupið einn hring í fríhöfninni og fengið okkur að borða, áður en kallað var út í vél. Flugið frá Kef til Berlínar var fínt, allir skiptinemarnir fengu að sitja saman, ja nema tveir, þannig að við gátum spjallað og reynt að sofa á milli.
Þegar við lentum í Berlín, þá byrjaði kafli sem enginn okkar hafði hlakkað rosalega til. 7 klst bið á skítugu GÓLFINU ! Við reyndum samt að vera sniðug og spila Alias og reyna að hafa eitthvað að gera, hlusta á tónlist, reyna að fara á netið, teikna eða spila á fiðlu.
Annars komust við að lokum inní fríhöfnina og gátum fengið okkur smá að borða. Flugið frá Berlín til Rómar var fínt, við flugum svo lágt yfir að við gátum séð ljósin fyrir neðan okkur ! AFS sjálfboðaliðarnir tóku á móti okkur og við fórum með rútu frá flugvellinum að hótelinu sem að við gistum ásamt öllum hinum skiptinemunum. Þegar við komum þangað kl rúmlega 01.30 voru flest okkar ekkert til í að heyra þær fréttir að daginn eftir þyrftum við að vakna kl.07.30 til að byrja dagskrána...
En við fórum á fætur og byrjuðum daginn. Ég eyddi deginum á kynningum sem að var fínt, það var samt skemmtilegast að kynnast öllum krökkunum og já fara í blak þarna í hádeginu. Ég var svo hrikalega spennt að fylgjast með að ég sofnaði í brunastiganum ...
Um kvöldið fórum við öll (500) uppí eitt risastórt tjald þar sem að forseti AFS á Ítalíu, held ég alveg örugglega, var að bjóða okkur formlega inní landið. Eftir það fórum við bara inní herbergi og vorum þar restina af kvöldinu, að nýta síðustu tímana sem við íslensku nemarnir höfðum saman.
Daginn eftir var byrjað á að lemja ótrúlega fast á hurðina hjá mér, Sölku og Soffíu kl.06 ! Þessi gaur var heppinn að fá bara ekki lampann í höfuðið... En greyið hafði ætlað að vera svo góður að vekja Auði Kartrínu sem var í næsta herbergi, svo hún myndi ekki missa af rútunni. Hann ruglaðist bara á Auðum. Kl.13 fór ég af stað í rútu með Miu (Finnland, hún var líka að fara til San Ferdinando) með 2 tíma stoppi á rútustöð að vísu ...
Það var 5 tíma rútuferð framundan svo að við létum bara fara vel um okkur. Allt gekk eins og í sögu og þegar við komum til Ceringola kl.20.30 biðu tvær fjölskyldur eftir okkur og við vorum báðar knúsaðar og kysstar í drasl ! En það er nefnilega þannig að fósturpabbi Miu (Nicholia) og fósturpabbi minn (Aurelio) eru bræður, þannig við frændsystkinin (ég, Mia, Maria Sofia, Simone(kærasti Mariu Sofiu) og Angelo) erum búin að vera mjög mikið saman og eigum eftir að vera það út árið. Við Mia og María erum í sama skóla, á sama ári en ekki í sama bekk J
Hérna fyrir neðan er smá fjölskylutré
Skrifa meira seinna !


1 comment: