2 dagar í brottför !
Eftir nokkrar vikur af þaulskipulögðum dögum, mjög mikið af tímatakmörkum og æðislegu kveðjupartýi þá er ég komin til Reykjavíkur og er hjá Ingvari og Ellen. Kom í gær með flugi til þess að eiga meiri tíma með systkinum mínum og ættfólki sem að ég sé minna. Ellen og Ingvar voru náttúrulega búin að græja rosalega fínan mat um kvöldið, þau eru alveg æðislegir gestgjafar ! Ein af bestu vinkonum mínum, Björk, kom frá Vestmannaeyjum í gær til að hitta mig aðeins og gisti með mér hjá Ingvari.
Það er ótrúlegt hvað ég á alveg rosalega gott vinafólk og yndislega fjölskyldu, það sést alveg rosalega vel þegar maður ákveður að flýja landið ...
Annars hef ég rosalega lítið að segja, á morgun förum ég og mamma á einhverskonar ferðafund hjá AFS, og við 12 skiptinemarnir sem erum að fara til Ítalíu, fljúgum út á föstudagsmorguninn 7.sept kl.08.30 ! Við millilendum í Berlín (í nokkrar klst...) áður en að við höldum áfram til Rómar, en þar er áætluð lending kl.23.45. Við verðum örugglega þokkalega þreytt þegar við komum á hótelið til allra hinna AFS nemana. Þá daginn eftir held ég, byrjar 2 daga komunámskeið fyrir okkur 470 skiptinemana. Við hlökkum öll rosalega til að hitta hvort annað, því við erum búin að vera í facebook sambandi síðan einhverntima í mars held ég !
En ég læt vita af mér og ég vona að næsta færsla verði aðeins meira spennandi :)
- Auður Björk
No comments:
Post a Comment