Friday, September 21, 2012

Fyrstu dagarnir


Mánudagurinn 10. Sept leið mjög fljótlega. Ég eyddi deginum eiginlega í að koma mér fyrir í herberginu mínu. Mia og María komu með pabba sínum og þær buðu mér að koma með þeim og Simone, kærasta Maríu, út að borða um kvöldið, ásamt vinkonu Maríu og kærastanum hennar. Ég þáði  auðvitað og um kvöldið fór ég heim til þeirra. Mia og María voru að gera sig tilbúnar og á meðan spjölluðum við hin, eða reyndum það, allir tala rosalega lélega ensku hérna ... Mér finnst það í raun ekkert skrítið, því eina tungumálið sem að heyrist hérna er ítalska ! Allt í útvarpi og sjónvarpi er annað hvort talsett eða bara ítalskt. En já, við fórum á veitingastað sem er rétt hjá heimili Maríu og Miu, þær búa rétt hjá torginu, sem er svona miðbærinn eiginlega. Á torginu hittum við vinkonu Maríu sem heitir Palma, og kærastann hennar. Allavega þetta var mjög skemmtilegt kvöld, og þar sem að María og Palma gátu alveg bjargað sér á ensku þá túlkuðu þær samræðurnar fyrir okkur Miu.

Á þriðjudaginn gerðum við ekkert sérstakt nema að um kvöldið þá fór ég til Maríu og Miu. Mia var reyndar úti að hjóla með stóra bróður þeirra, Angelo, þannig ég og María vorum eitthvað að spjalla og fengum okkur að borða. Það er ótrúlegt hvað Ítalir borða mikið, alltaf þegar ég er búin að borða þá er ég spurð hvort að ég vilji ekki örugglega meira ? Ætli maður verði ekki bara að vera ákveðin, það má samt ekki vera svo að maður sé dónalegur. En allavega þegar þau Angelo og Mia voru komin heim þá fór Mia að tala við kærastann sinn á facebook, og Angelo kenndi mér spil á meðan sem heitir scoopa, held ég. Það er alveg frekar auðvelt, en útskýringarnar þvældust aðeins fyrir mér þar sem að þær voru að mestu leyti á ítölsku eða mjög bjagaðari ensku. En þetta var órtúlega gaman. Simone kom stuttu eftir að við byrjuðum að spila og við fórum aðeins að rökræða ágæti ítalska boltans. Ég sagði þeim að sá eini fótboltamaður sem að ég þekkti eitthvað væri Messi, og hann er ekki einu sinni ítalskur. Þeir hlógu bara...

Fyndnar staðreyndir um Ítalíu/Ítala: 
*Strákarnir hérna ganga með hliðartöskur og plokka á sér augabrúnirnar...
*Ítalir eru alveg jafn klikkaður ökumenn og allir halda, og þeir kunna ekki að leggja í stæði
*Ég er bara frekar hávaxin stelpa hérna ! Já ég veit, ítalskar stelpur/ konur eru mjög litlar
*Ítalir drekka mikið af svokallaða acqua minerale, sem bragðast eins og gamalt sódavatn... jukk


Þangað til næst :)

No comments:

Post a Comment