Miðvikudaginn 12.sept fórum við Mia, María og
Aurelio í skólann sem við erum að fara í, sem er staðsettur í Trinitapoli, til
að hitta skólastjórann og eitthvað. Ég held að þetta sé alveg ágætur skóli,
veggirnir eru að vísu aðeins of myntugrænir fyrir minn smekk... En það voru
allir mjög fínir og spenntir yfir að fá okkur í skólann. Þannig við töluðum við
skólastjórann eða presidente eins og hann er kallaður á ítölsku.
Á leiðinni heim fórum við niður að sjónum, í fjöruborðið, og það var svo fallegt ! Fólk var þar bara að baða sig, enda ekki skrítið, ekki nema 30°C ... Sjórinn var svo tær að ég var ekki að trúa því, ég og Mia stukkum auðvitað útí. Ekki kannski alveg en við óðum alveg upp að hnjám J Við ætlum að fara þarna aftur, fleiri, einhverntíman seinna og taka með okkur sundföt !

Upp úr hádegi fórum við öll (þá meina ég fjölskyldan
mín og fjölskyldan hennar Miu) til Bari, sem að er frekar stór borg 80 km
austur af San Ferdinando. Þar fórum við í skrítnustu verslunarmiðstöðvum sem að
ég hef farið í ! Þetta var eiginlega ekki verslunarmiðstöð, heldur samansafn af
húsgagnaverslunum og svona allskonar mat sem unnið er í Puglia, inní risastóru
rými, mér var hugsað til Bogans þegar ég sá það. Puglia er s.s. héraðið sem að ég er í. Þarna
fyrir framan voru fullt af svona styttum til sölu, alveg risastórum ! Þarna fengum við að smakka brauð með ólívuolíu
og eitthvað sem að ég man ekki alveg hvað er, og þarna voru líka allskonar
ostar og vín í boði. Þarna voru líka staflar af kössum með tómötum, ég er ekki
að grínast, þeir náðu svona 5 metra uppí loftið !
Foreldrarnir voru alveg rosalega til í að skoða ALLAR eldhúsinnréttingarnar, baðherbergin og sófana þannig við Mia, María og Simone skemmtum okkur við að setjast á öll klósettin, prófa sófana og eitthvað ... Við fengum okkur samt ís ! Ótrúlega góðann gelato J
Loksins fórum við út úr þessu blessaða húsgagnarugli og inní The Palace of Nations, sem er risastórt húsnæði með básum frá ýmsum löndum, en við fundum hvorki Ísland né Finnland. Það var samt sem áður mjög mikið af áhugaverðum hlutum þarna, við stelpurnar misstum okkur pínu yfir eyrnalokkum frá Víetnam og ég keypti mér rosalega fallega útskorið, kínverskt box fyrir trélitina mína, sem ég nota þegar ég er að teikna. Það var líka alveg hellingur af drasli þarna... Við vorum orðin rosalega þreytt þarna uppúr 8 eða 9 um kvöldið, sérstaklega Simone sem hafði vaknað kl.04 til að fara að vinna ...
Þegar að ‚foreldrar‘ okkar voru búin að velta einhverju indversku rúmteppi fram og aftur í u.þ.b. 15 mínútur, þá fórum við loks út úr The Palace of Nations. Við vorum á leiðinni að einhverjum gosbrunni þegar þau eldri sáu forngripabúð sem að þau þurftu að kíkja aðeins á. Við hin fórum bara að þessum gullfallega gosbrunni og fengum okkur sæti á brúninni. Þetta var svona ekta ítalskur gosbrunnur, risastór og með fullt af styttum. Við tókum nokkrar myndir og fórum heim eftir það. Eða það hélt ég, en í staðin fyrir að fara heim þá fórum við öll á veitingastað í Trani. Það var mjög gaman og maturinn var góður. Mér brá samt þvílíkt þegar þjóninn kom með forrétt sem sem var annaðhvort kolkrabbahalar eða smokkfiska dæmi eitthvað... Ég var frekar fegin að þurfa ekki að smakka hann.

Fullt af myndum hér fyrir neðan !
- ABG